Gísli Þorgeir snéri sig illa (myndskeið)

Gísli Þorgeir Kristjánsson meiddist á ökkla í gær.
Gísli Þorgeir Kristjánsson meiddist á ökkla í gær. mbl.is/Óttar Geirsson

Gísli Þorgeir Kristjánsson snéri sig illa á ökkla þegar lið hans Magdeburg gerði jafntefli gegn Wisla Plock í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handknattleik í fyrri leik liðanna í Póllandi í gær.

Gísli Þorgeir fór af velli strax á 13. mínútu og þurfti aðstoð liðsfélaga sína til þess að komast út af en hann hafði skorað eitt mark í leiknum.

Leiknum lauk með 22:22-jafntefli en síðari leikur einvígisins fer fram í Þýskalandi á miðvikudaginn í næstu viku.

Óvíst er hversu lengi leikmaðurinn verður frá en hann virkaði sárþjáður á vellinum í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert