Afturelding tók á móti Haukum í þriðja leik undanúrslita karla í handbolta í kvöld. Leikið var að Varmá í Mosfellsbæ og lauk leiknum með sigri Hauka 31:30 eftir æsispennandi framlengdan leik.
Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið gegn ÍBV. Liðin mætast að nýju á Ásvöllum á sunnudaginn klukkan 16.00.
Það voru leikmenn Aftureldingar sem hófu leikinn og skoruðu í sinni fyrstu sókn. Haukar jöfnuðu leikinn og þannig gekk þetta fyrstu tvær sóknirnar. Þá tók lið Aftureldingar framúr Haukum og komst fljótlega þremur mörkum yfir og mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik. Haukar áttu alltaf í vandræðum með að brjótast í gegnum vörn Aftureldingar og sömuleiðis var varnarleikur Haukaliðsins ekki góður.
Sem betur fer fyrir Haukamenn átti Aron Rafn ágætan fyrri hálfleik og varði sex skot líkt og Jovan í liði Aftureldingar. Haukum tókst að minnka muninn niður í fimm mörk með vítaskoti eftir að leiktíma lauk. Staðan í hálfleik var 14:9 fyrir Aftureldingu.
Í síðari hálfleik byrjuðu Haukar með boltann. Þeir töpuðu boltanum og Afturelding jók muninn aftur í sex mörk. Eftir það hófst kafli þar sem Haukar minnkuðu muninn hægt og rólega. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var Afturelding yfir, 24:20. Þann mun náðu Haukar að minnka niður í 27:26 þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Haukum tókst síðan að jafna úr vítakasti áður en leiktímanum lauk.
Framlengingin var æsispennandi. Haukar byrjuðu framlenginguna tveimur mönnum fleiri þar sem Afturelding fékk tveggja mínútna brottvísun og svo rautt spjald undir lok leiksins. Haukar náðu að nýta sér forskotið og komust tveimur mörkum yfir, 29:27. Þegar jafnt varð í liðum þá náði Afturelding að jafna í stöðunni 30:30.
Það var síðan Guðmundur Bragi Ástþórsson sem skoraði sigurmark Haukamanna. Afturelding fékk tækifæri til að jafna þegar sex sekúndur voru eftir en Þorsteinn Leó Gunnarsson skaut boltanum yfir markið í lokasókninni.
Markahæstur í liði Hauka var Andri Már Rúnarsson með tíu mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot fyrir Hauka. Hjá Aftureldingu skoraði Þorsteinn Leó Gunnarsson 12 mörk og varði Jovan Kukobat níu skot.
Haukar eru því komnir yfir í einvíginu, 2:1, og geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV á sunnudag.