Íslendingaliðið í erfiðri stöðu

Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði eitt mark fyrir Volda í gærkvöldi.
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði eitt mark fyrir Volda í gærkvöldi. Ljósmynd/Volda

Íslendingalið Volda í handknattleik kvenna tapaði í gærkvöldi fyrri leik sínum gegn Oppsal, 21:28, í umspili um sæti í úrvalsdeild.

Leikið var í Volda en í umspilinu er leikið heima og að heiman og gildir samanlögð markatala eftir leikina tvo. Volda hafnaði í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar á meðan Oppsal hafnaði í þriðja sæti B-deildar.

Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði eitt mark fyrir Volda í gærkvöldi en Katrín Tinna Jensdóttir komst ekki á blað. Rakel Sara Elvarsdóttir var þá ekki í leikmannahópnum.

Halldór Stefán Haraldsson, sem tekur við karlaliði KA í sumar, þjálfar liðið og Hilmar Guðlaugsson er aðstoðarþjálfari hans.

Ærið verkefni bíður Volda í síðari leiknum í Oppsal næstkomandi sunnudag, þar sem liðið þarf að vinna upp sjö marka mun til þess að freista þess að halda sæti sínu í úrvalsdeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert