Skoraði tíu í fyrsta leik

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tíu.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tíu. mbl.is/Óttar Geirsson

Kadetten fer vel af stað gegn Pfadi Winterthur í undanúrslitum svissneska handboltans, en liðið vann 34:28-heimasigur í fyrsta leik einvígisins í kvöld.

Óðinn Þór Ríkharðsson hefur spilað gífurlega vel með Kadetten á leiktíðinni og hann var markahæstur hjá sínu liði með tíu mörk. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.

Þrjá sigra þarf til að fara áfram í úrslitin og er annar leikurinn á sunnudaginn kemur á heimavelli Pfadi Winterthur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert