Stefán Arnarson verður næsti þjálfari kvennaliðs Hauka í handbolta og mun stýra liðinu ásamt Díönu Guðjónsdóttur.
Vísir greinir frá. Stefán hefur undanfarin ár verið afar sigursæll með kvennalið Fram, á meðan Díana hefur gert mjög góða hluti með Hauka á undanförnum tveimur mánuðum.
Stefán stýrði Framliðinu í níu ár og vann þrjá Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla. Þar á undan gerði hann Val fjórum sinnum að Íslandsmeisturum og þrisvar að bikarmeisturum.
Díana tók við sem aðalþjálfari Haukaliðsins í byrjun mars, þegar Ragnar Hermannsson óskaði eftir því að hætta með liðið. Undir stjórn Díönu unnu Haukar óvæntan sigur á Fram í 1. umferð úrslitakeppninnar og tapaði naumlega fyrir ÍBV í oddaleik í undanúrslitum.