„Þetta er bara alveg hreint ótrúlegt. Síðustu sex til sjö ár hefur ÍR verið að fara í umspil og alltaf lent í öðru sæti þannig að þetta er í fyrsta skipti sem við klárum þetta alla leið, loksins,“ sagði Karen Tinna Demian, leikstjórnandi ÍR í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið.
ÍR tryggði sér á miðvikudagskvöld sæti í úrvalsdeild eftir sjö ára fjarveru með því að leggja Selfoss að velli, 30:27, í oddaleik liðanna í umspili um sætið á Selfossi. Selfoss hafnaði í sjöunda sæti úrvalsdeildar en ÍR í öðru sæti B-deildar.
Solveig Lára Kjærnested tók við þjálfun liðsins síðastliðið sumar eftir að hafa leikið stærstan hluta ferilsins með Stjörnunni. Sem spilandi þjálfari hjá uppeldisfélaginu úr Breiðholti kom hún liðinu upp um deild í fyrstu tilraun.
Undanfarin ár hefur liðið úr úrvalsdeild jafnan borið sigur úr býtum í umspilinu, og gjarna nokkuð örugglega. Því var þó ekki að heilsa að þessu sinni þar sem ÍR komst í 2:0 og vann einvígið gegn Selfossi að lokum 3:2.
„Við höfðum trú á okkur frá byrjun en á móti var það alltaf að fara að vera krefjandi að mæta úrvalsdeildarliði. Svo koma þessir fyrstu tveir leikir og við sýnum algjörlega úr hverju við erum gerðar.
Næstu tveir leikir voru aðeins slakari þannig að við ákváðum fyrir síðasta leikinn að það skipti mestu máli að hafa gaman af þessu og njóta þess að taka þátt. Að fá þetta verkefni og taka þátt í þessu einvígi. Að spila á móti úrvalsdeildarliði og halda áfram að spila okkar bolta. Það skilaði sínu,“ sagði Karen Tinna.
Viðtalið við Karen Tinnu má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.