Erum sjálfum okkur verstir í lok leiksins

Þorsteinn Leó Gunnarsson þrumar að marki.
Þorsteinn Leó Gunnarsson þrumar að marki. mbl.is/Hákon Pálsson

Þorsteinn Leó Gunnarsson var mjög svekktur með tap Aftureldingar gegn Haukum, 30:31, eftir æsispennandi framlengdan leik í undanúrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í handbolta í gærkvöldi. Þorsteinn Leó var markahæstur í liði Aftureldingar með 12 mörk.

„Við erum með leikinn í okkar höndum í 55 mínútur. Þetta er mjög svekkjandi að missa þetta svona niður. Mér finnst við alveg höndla pressuna en við erum sjálfum okkur verstir í lok leiksins. Sumir vilja kannski kalla það að höndla ekki pressuna en kannski var það bara þreyta.

Í lokin fáum við fáum tvær mínútur fyrir ólöglega skiptingu, rautt spjald og víti og við missum bara hausinn. Við förum inn í framlenginguna tveimur mönnum færri. Það var okkar banabiti.

Við vorum frábærir í fyrri hálfleik, sérstaklega vörnin og þeir skora bara þrjú mörk úr uppstilltum sóknarleik í fyrri hálfleik. Síðan missum við niður varnarleikinn í síðari hálfleik, fáum skot yfir okkur og opnum of mikið fyrir þá.

Þetta gerðist líka í síðasta leik og þetta þurfum við að laga fyrir næsta leik sem við verðum að vinna,” sagði Þorsteinn Leó í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert