Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, er ökklabrotinn og verður því frá um skeið. Þátttöku hans á tímabilinu með þýska meistaraliðinu Magdeburg er þar með lokið.
Þýska félagið tilkynnti um meiðslin á heimasíðu sinni í dag.
Gísli Þorgeir sneri sig illa á ökkla í fyrri leik Magdeburg gegn pólska liðinu Wisla Plock í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöld og þurfti aðstoð liðsfélaga sinna við að fara af velli.
Um enn eitt áfallið er að ræða fyrir Magdeburg þar sem Ómar Ingi Magnússon meiddist á hásin á HM 2023 með íslenska landsliðinu í janúar og hefur ekkert leikið með liðinu frá því fyrir áramót.
Auk þess er danski landsliðsmaðurinn Magnus Saugstrup alvarlega meiddur og þeir Philipp Weber og Oscar Bergendahl meiddust sömuleiðis í leiknum gegn Wisla Plock á miðvikudag, sem lauk 22:22, og verða þeir væntanlega frá út tímabilið.