Orri Freyr Þorkelsson, landsliðsmaður í handbolta, skiptir úr Elverum í Noregi og í Sporting í Portúgal eftir yfirstandandi leiktíð.
Nils Myhre, sem sér um leikmannamál Elverum, greindi frá í viðtali við miðilinn Østlendingen, sem handbolti.is vakti athygli á.
Orri verður væntanlega ekki eini íslenski vinstri hornamaðurinn í portúgölsku deildinni á næstu leiktíð, því Stiven Tobar Valencia er að öllum líkindum á leiðinni til Benfica, en bæði lið leika í Lissabon.
Orri lék með Haukum, áður en hann skipti yfir í Elverum fyrir tveimur árum. Hann var með íslenska landsliðinu á EM í Ungverjalandi á síðasta ári og varð norskur meistari með Elverum á síðustu leiktíð.