Aganefnd Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, ákvað í dag að draga rauða spjaldið til baka sem Úkraínumaðurinn Igor Kopyshynskyi, leikmaður Aftureldingar, fékk í þriðja leik liðsins gegn Haukum í undanúrslitum Íslandsmótsins í gærkvöldi.
Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómarar leiksins, útilokuðu Kopyshynskyi frá frekari þátttöku í leiknum eftir viðskipti hans við Ólaf Ægi Ólafsson, leikmann Hauka.
Rauða spjaldið fékk Úkraínumaðurinn fyrir „mjög grófa ódrengilega hegðun“ undir blálok venjulegs leiktíma. Haukar fengu dæmt vítakast fyrir vikið, skoruðu úr því og jöfnuðu metin og unnu svo leikinn í framlengingu.
Svavar Ólafur og Sigurður Hjörtur skiluðu inn agaskýrslu eftir leikinn þar sem þeir viðurkenndu mistök.
Með hliðsjón af skýrslunni ákvað aganefnd að draga rauða spjaldið til baka og um leið eins leiks bann sem Kopyshynskyi hefði þurft að taka út í fjórða leik liðanna á sunnudag.
Úrskurður aganefndar:
„Igor Kopyshynskyi leikmaður Aftureldingar hlaut útilokun vegna mjög grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Aftureldingar og Hauka í úrslitakeppni Olís deildar karla þann 11. maí 2023.
Í agaskýrslu dómara sem liggur frammi fyrir aganefnd, kemur fram að við skoðun á framangreindu atviki á myndbandsupptöku meðan á leik stóð, hafi ekki verið mögulegt að skoða öll sjónarhorn af atvikinu. Við nánari skoðun á myndbandsupptökum, að leik loknum, þar sem annað sjónarhorn var skoðað var það mat dómara að leikmaður Aftureldingar hafi ekki gerst brotlegur skv. reglu 8.10 c). Samkvæmt agaskýrslu dómara var útilokun leikmannsins því dregin til baka þar sem ákvörðunin hafi verið röng.
Í samræmi við framangreint er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar í málinu.“