Skrifaði undir langtímasamning

Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með íslenska landsliðinu.
Óðinn Þór Ríkharðsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við svissneska félagið Kadetten Schaffhausen sem gildir til næstu fjögurra ára, til sumarsins 2027.

Hægri hornamaðurinn Óðinn Þór hefur farið á kostum í liði Kadetten á sínu fyrsta tímabili hjá liðinu þar sem hann er markahæsti leikmaður þess.

Einnig er hann enn markahæstur allra í Evrópudeildinni, með 110 mörk í 13 leikjum. Kadetten er fallið úr leik í keppninni og því mögulegt að einhver annar leikmaður smeygi sér upp fyrir hann.

Óðinn Þór, sem er 25 ára gamall, hélt upp á nýja samninginn með því að skora tíu mörk í 34:28-sigri á Pfadi Winterthur í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis liðanna um svissneska meistaratitilinn í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert