Valur vann sannfærandi 30:23-útisigur á ÍBV í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta í Vestmannaeyjum í kvöld.
Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 5:5 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Þá kom góður kafli hjá Val og var staðan í hálfleik 14:9.
ÍBV tókst ekki að minnka muninn að ráði í seinni hálfleik og voru Valskonur með leikinn í sínum höndum, allt fram að lokaflautinu.
Valskonur skiptu mörkunum vel á milli sín, því Mariam Eradze, Þórey Anna Ásgeirsdóttir og Sigríður Hauksdóttur skoruðu fimm mörk hver. Ásdís Þóra Ágústsdóttir gerði fjögur og Sara Sif Helgadóttir varði 13 skot í markinu.
Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði sex mörk fyrir ÍBV, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir fimm og Elísa Elíasdóttir fjögur.
Annar leikurinn fer fram á Hlíðarenda þriðjudaginn 16. maí.
ÍBV | 23:30 | Valur | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Sara Sif Helgadóttir (Valur) varði skot | ||||
Augnablik — sæki gögn... |