Það var allt að

Sigurður Bragason á hliðarlínunni í kvöld.
Sigurður Bragason á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Valskonur komu og kafsigldu ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis liðanna í Íslandsmótinu í handknattleik kvenna í kvöld. Leikurinn fór fram á heimavelli deildar- og bikarmeistara ÍBV í Vestmannaeyjum þar sem mætingin var frábær hjá Eyjamönnum, en 30 Valsarar mættu einnig á leikinn.

Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, var svekktur í leikslok en ÍBV hafði unnið þrjár síðustu viðureignir sínar gegn Valskonum, þar á meðal bikarúrslitaleikinn í ár. Lokatölur í kvöld hinsvegar 30:23 þar sem Valskonur voru í allt öðrum gæðaflokki.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir umkringd varnarmönnum Vals í kvöld.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir umkringd varnarmönnum Vals í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

„Fyrsta korterið fannst mér þetta vera leikur, þar sem við komum ágæta inn í þetta og gáfum þeim alveg leik. Eftir korter varð þetta svo ömurlegt, það þarf ekkert að fara í grafgötur með það.

Við skjótum hörmulega á markið, Hanna er 1/6, tempóið sóknarlega er glatað, Elísa tapar öllum einvígjum á línunni og við komum boltanum aldrei á hana, Sunna brennir af dauðafærum, við erum léleg heim og Marta ver ekki neitt. Það var allt að, þetta hrundi. Ég er ánægður með hvernig við komum inn í seinni, við reyndum og vorum komnar of langt á eftir til að ná þeim,“ sagði Sigurður.

ÍBV endaði fyrri hálfleikinn ágætlega, ná að minnka í fimm mörk og byrja seinni hálfleikinn með yfirtölu.

„Fengum dauðafæri í byrjun seinni, klikkuðum á þeim og hún varði vel í markinu hjá þeim. Ég er sammála því, við enduðum þetta á jákvæðu nótunum, munurinn var samt fimm mörk og það í kvenna handbolta í úrslitakeppninni er rosalega mikið, það er lítið skorað. Við gáfum allt í þetta, reyndum og ég var ánægður með hugrekkið, það var enginn að gefast upp. Þetta var fjöldinn af leikmönnum sem ég er að rúlla á, hann er að bíta okkur helvíti fast.“

Sigurður Bragason kemur skilaboðum áleiðis í kvöld.
Sigurður Bragason kemur skilaboðum áleiðis í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

ÍBV minnkaði muninn í fjögur mörk á fyrstu mínútum seinni hálfleiks, Valskonur koma þessu svo í átta mörk og eftir það varð munurinn aldrei undir fimm mörkum, var Sigurður að leita að augnablikinu þar sem góði kaflinn myndi mæta og húsið með?

„Við ræddum þetta í hálfleik, stelpurnar voru fúlar hvernig við komum inn í þetta, andlega og andlitið á okkur ömurlegt. Stúkan eins og hún er búin að vera hérna, þetta var ekki okkar og ekki það sem við erum búnar að standa fyrir, við vorum staðráðnar í að reyna eins og við gátum, við gerðum það alveg. Það dugði ekki til þar sem þær voru of langt á undan okkur, þær rúlluðu á fleiri leikmönnum og höfðu meiri orku í restina.“

Harpa Valey Gylfadóttir spilaði í útilínunni í síðari hálfleik og virkaði sem flæðið yrði betra og þá fóru leikmenn ÍBV að finna Elísu á línunni sem komst í gang, er þetta eitthvað sem Sigurður þyrfti að nota meira?

„Klárlega, Harpa er að upplagi miðjumaður og spilaði fyrsta árið sitt í meistaraflokki sem miðjumaður. Hún kom mjög flott inn í það og reyndi að hraða aðeins leikinn, það dugði heldur ekki til. Ég þarf að grafa mjög djúpt í bókina til að finna einhverjar alvöru lausnir.“

Thea Imani Sturludóttir og Birna Berg Haraldsdóttir voru ekki með í dag, er Sigurður vongóður um að Birna Berg spili meira með liðinu á leiktíðinni?

Ljósmynd/Sigfús Gunnar

„Nei ég held ekki, það er brotið bein í hendinni á henni, þetta er handbolti, ef við værum í fótbolta þá gæti hún spilað handarbrotin. Þetta er of mikið, hún er að spila í vörn og annað, þó að hana langi það rosalega þá er það því miður ekki staðan. Við þurfum að gera þetta án hennar.“

Hvað ætlar Sigurður að gera í næsta leik?

„Ég þarf núna að fara í sálfræði og passa að þær falli ekki of langt niður, það þarf að vinna þrjá leiki og það er bara 1:0, það er þó auðvitað vont að tapa heimaleiknum. Við þurfum að passa að þær brjóti sig ekki niður og koma þeim upp andlega, við höfum ekki tíma til að æfa hluti en við þurfum að skoða á vídeó hvað við vorum að gera gott og hvað við gerðum illa.

Við þurfum að koma ferskar í þennan leik á þriðjudaginn, sama hvernig þetta einvígi verður þá þurfum við að njóta þess að vera hérna, það eru 18 ár síðan ÍBV var hérna, við erum tvöfaldir meistarar og þurfum allavega að sýna gleði í þessu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert