Þetta er bara rétt að byrja

Valskonur fagna í leikslok.
Valskonur fagna í leikslok. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Valskonur komu sér í góða stöðu í kvöld er liðið sótti sigur til Vestmannaeyja í fyrsta leik úrslitaeinvígis Íslandsmóts kvenna í handknattleik. Lokatölur 30:23, þar sem Valskonur voru einfaldlega miklu betri.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, hefur marga fjöruna sopið og er einn sá allra besti í faginu. Hann nýtti sinn leikmannahóp frábærlega í dag, þrátt fyrir að verða fyrir áfalli á síðustu dögum fyrir leikinn er Thea Imani Sturludóttir, lykilleikmaður liðsins, meiddist á æfingu.

„Við spiluðum virkilega vel, þetta var góð frammistaða hjá liðinu. Varnarleikurinn var góður og við vorum með fína markvörslu, við keyrðum mikið á þær og skoruðum mikið úr 1., 2. og 3. bylgju, sem var mikilvægt,“ sagði Ágúst stuttu eftir leik.

Ágúst á hliðarlínunni í kvöld.
Ágúst á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Valskonur keyrðu yfir ÍBV í upphafi leiks og mikill kraftur í liðinu. „Það var góð orka í liðinu, þær voru virkilega vel einbeittar, sem var eitthvað sem ég hafði smá áhyggjur af, það er erfitt að koma hingað, alltaf mikið af fólki og mikil læti. Við sýndum agaðan og góðan leik að mestu leyti, ég held að sigurinn hafi verið sanngjarn.“

ÍBV hafði unnið síðustu þrjár viðureignir liðanna á tímabilinu, þar á meðal bikarúrslitaleikinn, Ágúst segir það þó ekki hafa verið auka hvatning fyrir hans lið.

„Við vorum ekki mikið að velta því fyrir okkur, við vitum bara að ÍBV er með frábært lið og hafa verið bestar í vetur, við höfum fylgt þeim og verið næst bestar. Við vissum að við þyrftum að fá toppleik til þess að vinna þær og þannig verður það áfram, það er bara 1:0 og það er leikur aftur í Valsheimilinu á þriðjudaginn, við þurfum að komast heim til að æfa vel og hvíla okkur. Við þurfum að halda faglegum vinnubrögðum og vera öguð í því sem við erum að gera því að það þarf að vinna þrjá leiki, þetta er bara rétt að byrja.“

Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Thea Imani Sturludóttir, örugglega besti leikmaður Valsliðsins, var fjarri góðu gamni í dag, margir leikmenn liðsins stigu upp í fjarveru hennar.

„Við höfum góða breidd og í gegnum allt tímabilið höfum við spilað á mörgum leikmönnum, ég held við séum að spila á 12-13 leikmönnum í dag, fengum framlag frá mörgum leikmönnum. Það vegur þungt að vera að skora úr öllum stöðum, stelpurnar voru að gera þetta vel í dag,“ sagði Ágúst en hann er ekkert að fara í sína fyrstu seríu, hann veit að það þarf að nýta leikmannahópinn.

„Það er auðvitað þannig, það þarf að reyna að rúlla þessu eins og maður getur. Það þarf að vera strúktúr á þessu samt, sem gekk vel upp í dag, frammistaðan var mjög góð, varnarleikurinn mjög góður, sóknarleikurinn var agaður, við náðum að slútta vel á markið og koma okkur vel til baka. Við erum mjög ánægð með að ná í fyrsta sigurinn, þurfum samt að halda okkur á jörðinni, halda lágum prófíl og vera tilbúnar í næsta leik.“

Var Ágúst skellihlæjandi heima hjá sér að horfa á framlengingu eftir framlengingu í einvígi ÍBV og Hauka?

„Nei ég var nú alveg rólegur yfir því, þannig séð. Þetta hefur auðvitað tekið á hjá ÍBV, ég geri mér grein fyrir því. Ég hef lent í svona einvígi á móti Fram eftir að ég fór í fimm leikja seríu á móti Haukum og byrja svona strax.

Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Ég þekki þetta og veit að þetta er erfitt, þær voru líka extra óheppnar að lenda í svona mörgum framlengingum, það er ekkert óeðlilegt að það sé aðeins minna á tanknum hjá þeim, það getur vel verið að þær komi ferskar til baka í næsta leik og þær ætla sér það. Við þurfum að hugsa um okkur og vera eins tilbúnar og við mögulega getum.“

30 Valsmenn komu til Eyja með liðinu til að fylgjast með leiknum, er Ágúst svekktur að Valur - Tindastóll hafi verið á sama tíma og þá minnkað mögulegan fjölda Valsmanna sem gátu fylgt liðinu?

„Það hefði auðvitað verið gott að þetta væri ekki á sama degi, Valur er auðvitað að keppa á öllum vígstöðum, þetta félag, handbolta, fótbolta og körfubolta með mikið af afreksliðum, þetta var allavega eina skiptið sem þetta gerist og við verðum vonandi með fleira fólk á heimavelli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert