Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var að vonum kátur með sigur sinna manna á Aftureldingu, 31:30, eftir framlengdan leik í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla í gærkvöldi.
„Ég er fyrst og fremst ofboðslega ánægður með strákana. Við hættum ekki og gáfumst aldrei upp. Ég er ekki viss um að margir hafi haft trú á því að við gætum unnið þennan leik þarna í blálokin í venjulegum leiktíma. Við höfðum trúna og strákarnir stigu upp og þeir eiga þetta algjörlega skilið,” sagði hann í samtali við mbl.is eftir leik.
Spurður út í markvörsluna hafði Ásgeir Örn þetta að segja um Aron Rafn Eðvarðsson sem varði sex skot í fyrri hálfleik, ekkert í síðari hálfleik en kom svo sterkur inn í framlengingunni og varði fimm skot:
„Ég skal alveg viðurkenna það að ég var mjög tæpur á að fara taka hann út af í síðari hálfleik og skynsemin hefði sennilega legið þar. En Aron er algjör sigurvegari og hann steig upp nákvæmlega þegar við þurftum á honum að halda. Þetta eru karakterarnir úti um allt í liðinu.“
Spurður út í næsta leik þar sem Haukar geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV sagði Ásgeir Örn að lokum í samtali við mbl.is:
„Það sem við þurfum að fókusera á núna fyrir næsta leik er hvernig við byrjum leikinn. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik var auðvitað skelfilegur og við skorum bara níu mörk og allavegana þrjú eða fjögur mörk af þeim koma úr hraðaupphlaupi. Það kom okkur í vonda stöðu og það liggur bara hjá mér að finna taktískar lausnir á því.”