Veszprém vann sannfærandi 39:32-heimasigur á Komlói í efstu deild Ungverjalands í handbolta í kvöld.
Bjarki Már Elísson lét vel af sér kveða hjá Veszprém og skoraði átta mörk úr ellefu skotum.
Fékk Bjarki að spila meira en venjulega, því hann lék nánast allan leikinn. Iðulega er mínútunum skipt meira hjá Vezprém, þar sem leikjaálagið er mikið.
Veszprém er í öðru sæti deildarinnar með 45 stig, einu stigi á eftir Pick Szeged eftir 24 umferðir.
Næsti leikur liðsins er seinni leikurinn gegn pólska liðinu Kielce í Meistaradeildinni. Leikið verður í Póllandi og er allt hnífjafnt, eftir 29:29-jafntefli í fyrri leiknum í Ungverjalandi.