Handboltaæði hefur gripið um sig á meðal Færeyinga eftir að karlalandslið þeirra í handbolta vann það afrek að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins í fyrsta skipti.
Talið er að rúmlega 2.000 Færeyingar muni fara til Berlínar í Janúar nk. þar sem færeyska landsliðið leikur í riðlakeppninni. Til samanburðar má nefna að talði sé að um 3.000 Íslendingar hafi verið þegar þeir voru flestir á leikjum HM í upphafi þessa árs.
Hans Jón Thomsen, starfsmaður Handknattleikssambands Færeyja, sagði í samtali við Portal.fo að áhuginn sé slíkur að unnið sé að því að fá fleiri en þá 1.000 miða sem sambandinu stendur til boða og að líklegt sé að sambandið þurfi um 2.000 miða í heildina.
Færeyjar leikur í D-riðli mótsins ásamt Noregi, Slóveníu og Póllandi. Það verður gaman að fylgjast með færeyska landsliðinu á mótinu en Færeyingurinn Elías Ellefsen á Skipagøtu, sem spilar með stórliði Kiel í þýsku A-deildinni, er einn efnilegasti handboltamaður í heimi.