Metzingen hafði betur gegn Sachen Zwickau á heimavelli í Íslendingaslag í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld, 33:26.
Þrátt fyrir úrslitin skoraði Díana Dögg Magnúsdóttir sex mörk fyrir Zwickau, og var markahæst, en Sandra Erlingsdóttir komst ekki á blað hjá Metzingen.
Metzingen er í sjötta sæti með 28 stig og Zwickau í 12. sæti með 12 stig, aðeins einu stigi fyrir ofan umspil um að halda sæti sínu í deildinni.