Arnór og félagar skemmdu fyrir Refunum

Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur mörk gegn Füchse Berlín í …
Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur mörk gegn Füchse Berlín í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer settu stórt strik í reikning Füchse Berlín í baráttunni um þýska meistaratitilinn í handknattleik í dag.

Bergischer vann leikinn 34:30 þar sem Arnór skoraði fjögur mörk og fyrir vikið eru Berlínar-refirnir í Füchse áfram í þriðja sætinu með 47 stig þegar fjórum umferðum er ólokið en Kiel og Magdeburg eru með 49 stig. Kiel á leik til góða. Bergischer er í áttunda sæti deildarinnar með 30 stig.

Flensburg á enn veika von eftir sigur á lærisveinum Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach í dag, 31:26. Flensburg er með 45 stig í fjórða sætinu. Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark fyrir Flensburg. Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrmisson ekkert. Lið þeirra er í 10. sæti með 28 stig.

Melsungen vann Minden örugglega á útivelli, 28:21. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Melsungen en Elvar Örn Jónsson spilar ekki meira á tímabilinu eftir að hafa meiðst á æfingu í vikunni. Lið þeirra er með 28 stig í níunda sæti. 

Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Minden sem er í erfiðri stöðu í næstneðsta sæti með 12 stig, fimm stigum frá því að komast úr fallsæti þegar fjórum umferðum er ólokið. Allt bendir því til þess að Aðalsteinn Eyjólfsson taki við liði Minden sem B-deildarliði í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert