Lærisveinar Guðmundar í undanúrslit

Guðmundur Þ. Guðmundsson er kominn í undanúrslit með Fredericia.
Guðmundur Þ. Guðmundsson er kominn í undanúrslit með Fredericia. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fredericia er komið í undanúrslit danska handboltans eftir 26:24-útisigur á Skanderborg í lokaumferð úrslitakeppnisriðlanna.

Guðmundur Guðmundsson þjálfar Fredericia og hefur liðið komið á óvart á leiktíðinni, undir handleiðslu landsliðsþjálfarans fyrrverandi. Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá Fredericia.

Aalborg leikur einnig í undanúrslitum, en liðið vann 35:27-heimasigur á Skjern. Aron Pálmarsson skoraði fimm og lagði upp þrjú fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.

Ribe-Esbjerg er komið í sumarfrí, en liðið gerði 31:31-jafntefli á útivelli gegn Kolding. Elvar Ásgeirsson skoraði sjö mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Ágúst Elí Björgvinsson varði sjö skot í markinu. Arnar Birkir Hálfdánsson komst ekki á blað.  

Fredericia mætir Skjern í undanúrslitum og Aalborg og GOG mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu. Fyrstu leikir einvíganna fara fram eftir viku og annar leikur 24. maí, en tvo sigra þarf til að fara í úrslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert