Þýskalandsmeistarar Magdeburg í handknattleik karla eiga enn ágæta möguleika á að verja meistaratitlinn eftir góðan útisigur á Rhein-Neckar Löwen í dag, 37:35.
Magdeburg hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum í vetur og misst m.a. bæði Ómar Inga Magnússon í hálft tímabil og nú Gísla Þorgeir Kristjánsson í síðustu fimm umferðum deildarinnar eftir að hann ökklabrotnaði á dögunum.
Samt náði liðið tvö dýrmæt stig á erfiðum útivelli í dag og er nú jafnt Kiel á toppnum með 49 stig en hefur leikið einum leik meira. Füchse Berlín leikur við Bergischer á útivelli í dag og færi líka í 49 stig með sigri í þeim leik.
Ýmir Örn Gíslason var að vanda atkvæðamikill í varnarleik Löwen í dag en kom lítið við sögu í sókninni og skoraði ekki mark en átti eina stoðsendingu.
Staðan var 36:33 þegar 90 sekúndur voru eftir en Löwen skoraði tvívegis og hleypti spennu í leikinn síðustu hálfu mínútuna. Lukas Mertens gulltryggði sigur Magdeburg með marki í lokin.
Michael Damgaard skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg og Tim Hornke 8 en Juri Knorr skoraði 9 mörk fyrir Löwen sem er í fimmta sæti með 37 stig.