Kadetten hafði betur gegn Pfadi Winterthur á útivelli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum svissneska handboltans í dag, 37:34. Úrslitin réðust í framlengingu, eftir mikinn spennuleik.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var 31:31, en Kadetten var sterkari aðilinn í framlengingunni og tryggði sér sætan þriggja marka sigur. Liðið þarf einn sigur til viðbótar til að fara í úrslitaeinvígið.
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson átti enn og aftur góðan leik fyrir Kadetten og skoraði níu mörk. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið.