Oddaleikur eftir enn einn spennuleikinn

Birkir Benediktsson sækir að marki Hauka. Ólafur Ægir Ólafsson fylgist …
Birkir Benediktsson sækir að marki Hauka. Ólafur Ægir Ólafsson fylgist með. mbl.is/Óttar

Afturelding vann í dag útisigur á Haukum, 31:30, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Staðan í einvíginu er því 2:2 og úrslitin ráðast því í oddaleik í Mosfellsbæ á þriðjudagskvöldið, en sigurliðið í einvíginu mætir ÍBV í úrslitum. 

Mikill hiti var í leikmönnum í byrjun leiks og hart barist. Haukar komust 2:0 yfir í leiknum áður en að Afturelding jafnaði í 2:2 og komust síðan yfir í 3:2.

Haukar náðu síðan aftur forskoti í 5:4 en þá komst Afturelding aftur yfir í 8:5 og leiddi mestan fyrri hálfleikinn þó svo að Haukar hafi jafnað leikinn í stöðunum 8:8, 9:9 og 12:12. Þá tók Afturelding aftur forystuna og var með forystu í hálfleik 17:14.

Atkvæðamestur í liði Aftureldingar í fyrri hálfleik var Blær Hinriksson með sex mörk. Í liði Hauka var Andri Már Rúnarsson með fjögur mörk. Markverðir liðanna vörðu báðir fimm skot í fyrri hálfleik, Aron Rafn Eðvarðsson í liði Hauka og Brynjar Vignir Sigurjónsson í liði Aftureldingar.

Afturelding hóf seinni hálfleik á að auka muninn í fjögur mörk. Haukum tókst að minnka muninn strax í þrjú mörk og þannig gekk síðari hálfleikurinn. Afturelding var alltaf tveimur til þremur mörkum yfir í leik sem innihélt mikla hörku og voru liðin samtals 16 mínútur út af í leiknum.

Þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir af leiknum jöfnuðu Haukamenn í stöðunni 29:29 og stefndi allt í að lið Aftureldingar væri að brotna líkt og í síðustu tveimur leikjum í einvíginu.

Þorsteinn Leó Gunnarsson var þó ekki sammála og skoraði tvívegis ásamt því að Brynjar Vignir Sigurjónsson varði hraðaupphlaup frá Stefáni Rafni Sigurmannssyni. Staðan var 31:29 fyrir Aftureldingu þegar rúmlega ein mínúta var eftir.

Guðmundur Bragi skoraði úr víti fyrir Hauka og allt var í járnum. Haukar reyndu að jafna þegar fjórar sekúndur voru eftir en Brynjar Vignir varði langskot frá Tjörva Þorgeirssyni. Leiknum lauk því með sigri Aftureldingar.

Atkvæðamestir í liði Aftureldingar í dag voru þeir Blær Hinriksson og Þorsteinn Leó Gunnarsson með níu mörk hvor. Hjá Haukum skoraði Andri Már Rúnarsson tíu mörk.

Haukar 30:31 Afturelding opna loka
60. mín. 33 sekúndur eftir og Afturelding með boltann. Búin að vera löng pása hérna og enginn veit afhverju.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert