Stórleikur Andreu dugði ekki til

Andrea Jacobsen leikur með EH Aalborg.
Andrea Jacobsen leikur með EH Aalborg. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stórleikur landsliðskonunnar Andreu Jacobsen dugði ekki EH Aalborg til sigurs í öðrum umspilsleik liðsins gegn Ajax frá Kaupmannahöfn um sæti í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Andrea skoraði níu mörk í leiknum en Álaborgarliðið tapaði á heimavelli, 26:29. Ajax vann úrslitaeinvígi liðanna 2:0 og heldur sæti sínu í úrvalsdeildinni en EH Aalborg leikur áfram í B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert