Það voru bara allir geggjaðir

Birkir Benediktsson skorar fyrir Aftureldingu gegn Haukum í dag.
Birkir Benediktsson skorar fyrir Aftureldingu gegn Haukum í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Brynjar Vignir Sigurjónsson var himinlifandi með sigur Aftureldingar á Haukum, 31:30, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta dag.

Brynjar varði 11 skot í leiknum fyrir Aftureldingu. Staðan er núna jöfn í einvíginu, 2:2, en liðin mætast í oddaleik á heimavelli Aftureldingar á þriðjudaginn. 

„Öll liðsheildin er maður leiksins. Við vorum allir saman í þessu og ætluðum allir að vinna. Við eigum samt fullt inni. Ég sjálfur átti góðan leik en ég á samt fullt inni. Steini geggjaður, Blær geggjaður og það voru bara allir geggjaðir,“ sagði Brynjar í samtali við mbl.is.

„Við eigum samt talsvert inni í varnarleiknum finnst mér. Liðsheildin var lykillinn að þessum sigri. Við ætluðum að vinna þennan leik og við gerðum það. Nú þurfum við bara að halda sama leikplani og vinna að Varmá,“ sagði Brynjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert