Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson leikur ekki meira með þýska liðinu Melsungen á þessari leiktíð vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu liðsins í vikunni.
Elvar varð fyrir því óláni að slíta liðbönd í ökkla og verður frá keppni í fimm til sjö vikur. Liðið á fimm leiki eftir á leiktíðinni í þýsku deildinni og því er ljóst að Elvar leikur ekki meira á þessari leiktíð.
„Þetta eru slæmar fréttir. Elvar er einn af okkar mikilvægustu leikmönnum, bæði í vörn og sókn,“ er haft eftir Michael Allendorf, framkvæmdastjóra félagsins, á heimasíðu þess.
Elvar er ekki eini íslenski landsliðsmaðurinn sem leikur í Þýskalandi og er að glíma við meiðsli. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmenn Magdeburg, verða einnig frá í nokkurn tíma vegna meiðsla.