Byrjaður að æfa á ný

Mikkel Hansen í leik með Dönum.
Mikkel Hansen í leik með Dönum. AFP/Attila Kisbenedek

Mikkel Hansen, einn besti handboltamaður heims um árabil, er byrjaður að æfa á ný með liði sínu, Aalborg, eftir að hafa farið í veikindaleyfi í febrúar vegna mikils álags.

Hansen hafði verið undir miklu álagi sem leikmaður með París SG um árabil og síðan með Aalborg á yfirstandandi tímabili, ásamt því að hann varð heimsmeistari með Dönum í janúarmánuði. Þá fékk hann blóðtappa vorið 2022.

„Ég hef gengið í gegnum erfiða tíma, andlega, en hef sem betur fer fengið stórkostlegan stuðning frá fjölskyldu, vinum, sérfræðingum og vinnuveitendum. Nú er ég aftur kominn með orku og kraft til þess að snúa aftur í íþróttina sem ég elska," sagði Hansen á heimasíðu Álaborgarliðsins í dag.

Hann spilar þó ekki meira á tímabilinu með liði Aalborg sem er komið í fjögurra liða úrslitin um danska meistaratitilinn og á þar fyrir höndum einvígi við GOG um hvort liðanna leikur til úrslita við Skjern eða Fredericia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert