Þorgils Jón Svölu Baldursson, handknattleiksmaður úr Val, er genginn til liðs við Karlskrona, nýliða í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Karlskrona skýrði frá þessu í dag á heimasíðu sinni og að samið hefði verið við Þorgils til tveggja ára. Þar með koma tveir Íslendingar til félagsins í sumar en áður hafði félagið samið við landsliðsmanninn Ólaf Guðmundsson sem kemur til Karlskrona frá Amicitia Zürich.
Þorgils er 25 ára gamall línumaður sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Valsmönnum síðustu tímabil.
Karlskrona lék í B-deildinni í vetur og hafnaði þar í öðru sæti. Liðið vann síðan Helsingborg í umspilseinvígi um sæti í úrvalsdeildinni.