Leik ÍBV og Aftureldingar í úrvalsdeild kvenna í handbolta, sem átti að fara fram í dag, hefur verið frestað.
Leiknum er frestað vegna veðurs og þar með breytingu á ferðum Herjólfs í dag. Því ferðast Afturelding á morgun til Vestmannaeyja og nýr leiktími er á morgun, mánudag, klukkan 19.