43 ára Alexander Petersson með Íslandi á EM?

Alexander Petersson er í æfingahópnum.
Alexander Petersson er í æfingahópnum. AFP

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 35 leikmenn sem koma til greina í undirbúninginn fyrir EM 2024, sem fer fram í Þýskalandi í janúar næstkomandi.

Íslenska liðið kemur saman til æfinga á Íslandi 27. desember og heldur svo til Austurríkis þann 5. janúar.

Ísland leikur þar tvo vináttulandsleiki gegn Austurríki 6. og 8. janúar í Vínarborg og Linz áður en haldið verður til München í Þýskalandi.

Kunnugleg andlit snúa aftur í leikmannahópinn, þar á meðal markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson úr Haukum og Alexander Petersson úr Val. Gísli Þorgeir Kristjánsson er í hópnum, en hann er að jafna sig á alvarlegum axlarmeiðslum.

Fimm nýliðar eru þá í í hópnum: þeir Andri Már Rúnarsson hjá Leipzig í Þýskalandi, Arnór Snær Óskarsson hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi, Einar Bragi Aðalsteinsson úr FH, Benedikt Gunnar Óskarsson úr Val og liðsfélagi hans Tjörvi Týr Gíslason.

Eftirfarandi leikmenn eru í æfingahópnum:

Markverðir:
Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar (84/6)
Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (48/2)
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (258/21)
Daníel Freyr Andrésson, FH (2/0)
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (49/1)

Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém (105/365)
Hákon Daði Styrmisson, Eintracht Hagen (16/26)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (10/9)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (6/6)

Vinstri skytta:
Andri Már Rúnarsson, Leipzig (0/0)
Aron Pálmarsson, FH (168/644)
Daníel Þór Ingason, Bailingen Weilstetten (39/11)
Einar Bragi Aðalsteinsson, FH (0/0)
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (19/21)
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (66/157)
Magnús Óli Magnússon, Valur (16/7)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Afturelding (3/1)

Leikstjórnendur:
Benedikt Gunnar Óskarsson, Valur (0/0)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (2/0)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (51/113)
Haukur Þrastarson, Vive Kielce (23/28)
Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (72/114)

Hægri skytta:
Arnór Snær Óskarsson, Rhein-Neckar Löwen (0/0)
Kristján Örn Kristjánsson, Pays d´Aix (29/60)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (74/254)
Teitur Örn Einarsson, Flensburg-Handewitt (35/36)
Viggó Kristjánsson, Leipzig (44/114)

Hægra horn:
Alexander Petersson, Valur (186/726)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (30/89)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (63/172)

Línumenn og vörn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (85/94)
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (37/68)
Sveinn Jóhannsson, GWD Minden (12/24)
Tjörvi Týr Gíslason, Valur (0/0)
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (78/35)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert