Handknattleiksmaðurinn Hafþór Már Vignisson leikur væntanlega ekki meira með norska liðinu Arendal á leiktíðinni vegna meiðsla.
Hafþór gekkst undir aðgerð vegna brjóskloss í baki í síðustu viku og verður frá næstu mánuði. Handbolti.is greindi frá í dag.
Hafþór gekk í raðir Arendal frá Empor Rostock í Þýskalandi fyrir ári síðan. Hann er uppalinn hjá Þór á Akureyri en hefur einnig leikið með ÍR og Stjörnunni á Íslandi.