Haukar höfðu betur gegn nágrönnum sínum í FH, 33:29, þegar liðin áttust við í Hafnarfjarðarslag í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik á Ásvöllum í kvöld.
FH byrjaði leikinn betur og komst í 0:2 áður en Haukar settu allt í gang og skoruðu 6 mörk í röð og komust í 6:2. Haukar héldu forystunni út allan fyrri hálfleikinn og fóru til hálfleiks með þriggja marka forskot í stöðunni 17:14.
Haukar héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og leiddu allan tímann. Aron Rafn Eðvarðsson átti stórgóðan leik og varði 15 skot, þar af eitt vítaskot og komu nokkrar vörslur hjá honum á mjög krítískum tímapunktum í leiknum.
Athygli vakti hinsvegar að hinu megin á vellinum var markvarslan nánast engin, en þeir Daníel Freyr Andrésson og Axel Hreinn Hilmisson vörðu samtals 8 skot.
FH náði að minnka muninn niður í eitt mark, 25:24, þegar síðari hálfleikur var rúmlega hálfnaður en þá náðu Haukar aftur yfirhöndinni og unnu að lokum sterkan fjögurra marka sigur.
Haukar eru þar með komnir í undanúrslit bikarkeppninnar líkt og Stjarnan og ÍBV.
Össur Haraldsson og Þráinn Orri Jónsson voru markahæstir í liði Hauka með sex mörk hvor.
Jóhannes Berg Andrason var markahæstur í leiknum með níu mörk fyrir FH.
Montrétturinn í Hafnarfirði er því hjá Haukum, að minnsta kosti þangað til að liðin mætast næst í Kaplakrika í deildinni.