Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, styrkti stöðu sína í efri hluta þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í kvöld með því að sigra Lemgo á útivelli, 26:23.
Arnór Snær Óskarsson, sem er í láni frá Rhein-Neckar Löwen, skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach í kvöld og Elliði Snær Viðarsson skorðai eitt.
Gummersbach fór þar með upp fyrir Hannover-Burgdorf og í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig en þar fyrir ofan er fimm stiga bil upp í toppbaráttu deildarinnar.