Snorri valdi hóp fyrir tvo vináttuleiki

Snorri Steinn Guðjónsson fer yfir málin með leikmönnum sínum á …
Snorri Steinn Guðjónsson fer yfir málin með leikmönnum sínum á EM 2024 í síðasta mánuði. AFP/Ina Fassbender

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 18 leikmenn til þátttöku í tveimur vináttuleikjum gegn Grikklandi ytra í næsta mánuði.

Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hafði verið í leit að verkefni í vikunni 11. – 17. mars þegar landsleikjahlé stendur yfir og nú er ljóst að liðið ferðast til Grikklands og mætir þar heimamönnum í tvígang.

Kristján Örn Kristjánsson er frá vegna meiðsla, Snorri Steinn hefur ÞÁ ákveðið að gefa Bjarka Má Elíssyni og Aroni Pálmarssyni frí í þessu verkefni landsliðsins.

Leikmannahópur Íslands:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (267/22)
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (58/1)

Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (94/98)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (8/0)
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (46/97)
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (75/171)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (59/129)
Haukur Þrastarson, Vive Kielce (31/42)
Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (80/130)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Katten Schaffhausen (36/104)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (82/280)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (10/9)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (72/207)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (15/11)
Teitur Örn Einarsson, Flensburg-Handewitt (36/36)
Viggó Kristjánsson, Leipzig (53/149)
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (86/36)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Afturelding (3/1)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert