Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, reyndist hetja Magdeburg þegar liðið lagði Barcelona að velli, 29:28, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.
Gísli Þorgeir var markahæstur í liði Magdeburgar með sex mörk og það sjötta kom örfáum sekúndum fyrir leikslok.
Dramatískt sigurmark hans má sjá hér:
This is how you win #MOTW and the #POTM 𝐊𝐫𝐢𝐬𝐭𝐣𝐚𝐧𝐬𝐬𝐨𝐧 did it ✨#ehfcl #clm #daretorise pic.twitter.com/wFGRQ1NCs8
— EHF Champions League (@ehfcl) February 29, 2024