Leikmaður Selfoss úr Höllinni í sjúkrabíl

Katla María lenti illa eftir þetta einvígi.
Katla María lenti illa eftir þetta einvígi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katla María Magnúsdóttir, leikmaður Selfoss, yfirgaf Laugardalshöllina í sjúkrabíl í kvöld en þegar þessi frétt er skrifuð er Selfoss með 18:16-forskot gegn Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta.

Lenti skyttan illa í fyrri hálfleik með þeim afleiðingum að hún meiddist á ökkla. Var gert langt hlé á leiknum á meðan gert var að meiðslum Selfyssingsins.

Er um mikið áfall fyrir Selfoss að ræða, enda einn allra besti leikmaður liðsins og leikmaður sem hefur verið í landsliðshópi Íslands undanfarna mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert