Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson skoraði 2 mörk í stórsigri Kielce, 40:25, á MMTS Kwidzyn í 8-liða úrslitum pólska handboltans. Kielce er komið í undanúrslit eftir tvo auðvelda sigra.
Pólverjinn ungi Szymon Wiaderny var markahæstur leikmanna Kielce með 8 mörk og Frakkinn Benoit Kounkoud skoraði 6 mörk.
Kielce hefur hampað pólska meistaratitlinum undanfarin 11 ár.