„Við völtuðum yfir þá eins og planið var,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson, einn markahæsti leikmaður Aftureldingar eftir 35:24 sigur Aftureldingar á Stjörnunni í kvöld í átta liða úrslitum á Íslandsmótinu.
Þetta var þriðji leikur liðanna í einvíginu en oddaleik þurfti til þess að knýja fram úrslit. Valur, FH og ÍBV tryggðu sig í úrslit eftir aðeins tvo leiki.
Fyrri leikur liðanna fór 29:28 fyrir Aftureldingu og seinni og annar 27:25 fyrir Stjörnunni svo leikurinn í dag spilaðist allt öðruvísi en fyrstu tveir.
„Þetta er mjög góð tilfinning, við komum sterkir inn í leikinn og náðum að klára þetta,“ sagði Þorsteinn Leó eftir leikinn í kvöld.
Þorsteinn gat ekki tekið þátt í fyrsta leiknum í einvíginu og kom lítið til sögu í öðrum leiknum.
„Ég var meiddur í öxlinni en hún er í lagi í dag, það gekk allt upp. Ég er með góða menn að hjálpa mér svo ég var fljótur að jafna mig.“
Afturelding mætir Val í næsta leik sem komst í undanúrslit á sunnudaginn eftir sterkan sigur á Fram en Þorsteinn telur auka hvíldina sem Valsarar fá ekki hafa áhrif á leikinn sem er framundan.
„Við verðum klárlega ekki þreyttari. Við náðum að hvíla mannskapinn vel í þessum leik og komum sterkir inn í næsta leik,“ sagði Þorsteinn en þar sem Valur er í Evrópukeppni er það líklegast rétt.
„Ég er mjög spenntur fyrir leiknum, þetta verður skemmtilegt einvígi og við eigum góðan séns í þá.“