Handknattleiksmaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við þýska félagið Hagen.
Hagen leikur í næstefstu deild þýska handboltans en Hákon Daði hefur farið á kostum með liðinu undanfarnar vikur og skoraði meðal annars 17 mörk í einum leik.
Hákon Daði sagði í samtali við handbolta.is í byrjun mars að hann yrði ekki áfram hjá félaginu. Hefur frammistaða hans undanfarið breytt skoðun forráðamanna félagsins og verður hann því þar næstu árin.
Hákon hefur skoraði 133 mörk í B-deildinni en hann er 11. markahæsti maður deildarinnar.