Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason fóru á kostum í 34:28 sigri Magdeburg á Lemgo í þýsku 1. deldinni í handbolta í dag.
Janus skoraði átta mörk og Ómar sjö mörk í þessum frábæra leik og Gísli Þorgeir Kristjánsson bætti við þremur ísleskum mörkum en Íslendingarnir skoruðu rúman helming af mörkum Magdeburg í dag.
Liðið er á toppi deildarinnar með 52 stig, jafn mörg og Fuchse Berlin en eiga tvo leiki til góða.