Handboltamaðurinn Hafþór Már Vignisson snýr aftur heim í Þór á Akureyri en hann var hjá norska úrvalsdeildarliðinu Arendal.
Hafþór er að jafna sig á erfiðum meiðslum en hann fór í aðgerð í febrúar vegna brjóskloss.
Hafþór gekk í raðir Arendal frá Empor Rostock í Þýskalandi en hann er uppalin hjá Þór.
Þór var hársbreidd frá því að næla sér í sæti í efstu deild en tapaði úrslitaeinvíginu 3:2 gegn Fjölni og spilar því í næst efstu deild á næsta tímabili.