Fjölnir safnar liði

Aðalsteinn er snúinn heim
Aðalsteinn er snúinn heim Ljósmynd/Fjölnir

Fjölnismenn hafa nælt í Aðalstein Örn Aðalsteinsson frá Stjörnunni. Fjölnir leikur að nýju í úrvalsdeild karla í handbolta í ár.

Aðalsteinn snýr aftur til uppeldisfélagsins eftir tveggja ára dvöl í Garðabænum en Aðalsteinn er örvhent skytta sem kemur til með að styrkja Grafarvogsbúa fyrir komandi tímabil.

Nýverið réð félagið Gunnar Stein Jónsson sem þjálfara en Sverrir Eyjólfsson sagði starfi sínu lausu nýverið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert