„Ég hugsa að þetta hafi verið mjög sérstök upplifun fyrir Grikkina, að sjá okkar stuðningsmenn koma út úr rútunni,“ sagði handknattleiksmaðurinn og Evrópubikarmeistarinn Alexander Örn Júlíusson í Dagmálum.
Alexander, sem er 29 ára gamall, varð Evrópubikarmeistari með Val á dögunum eftir afar dramatískan sigur gegn Olympiacos í vítakeppni í Aþenu.
Um 100 stuðningsmenn Vals fylgdu liðinu til Aþenu þar sem síðari leikurinn gegn Olympiacos fór fram en leikurinn fór fram Friðar- og vináttuhöllin í Piraeus og voru um 7.000 manns á leiknum.
„Þetta var mestmegnis fjölskyldufólk, með börn, og svo eldra fólk,“ sagði Alexander.
„Það var svo bara vopnuð lögregla sem tók á móti þeim og ég held að lögreglan hafi verið dauðfegin þegar hún sá þau,“ sagði Alexander meðal annars.