Tekur slaginn í næstefstu deild

Tryggvi Sigurberg Traustason í leik gegn FH.
Tryggvi Sigurberg Traustason í leik gegn FH. mbl.is/Óttar Geirsson

Handknattleiksmaðurinn Tryggvi Sigurberg Traustason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Selfoss. 

Tryggvi er lykilmaður hjá Selfyssingum en hann var valin sóknarmaður ársins á lokahófi Selfoss í vor. 

Selfoss féll niður í 1. deildinni á síðasta tímabili og stefnir rakleiðis upp aftur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert