Handknattleiksmaðurinn Jóel Bernburg hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu á næsta tímabili.
Jóel, sem er 22 ára línu- og varnarmaður, kemur frá Val þar sem hann er uppalinn.
Einnig hefur Jóel á ferli sínum leikið sem lánsmaður hjá Gróttu hluta tímabilsins 2022-’23.
„Jóel er spennandi leikmaður sem smellur vel inn í okkar leikmannahóp. Hann er í góðu líkamlegu formi og getur spilað báðum megin á vellinum,“ sagði Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, í tilkynningu frá handknattleiksdeild félagsins.