Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska karlalandsliðiðinu í handbolta unnu Egyptaland, 36:29 í vináttuleik í dag í lokaundirbúningi liðsins fyrir Ólympíuleikana í París.
Króatía var yfir í hálfleik, 18:14 vann að lokum yfirburðasigur gegn Egyptalandi. Dagur tók við liðinu í febrúar á þessu ári og hefur farið vel af stað.
Króatía hefur leik á Ólympíuleikunum í lok mánaðar en fyrsti leikur liðsins er gegn Japan.
Króatía er í A-riðli með Þýskalandi, Spáni, Slóveníu, Svíþjóð, og Japan. Fjögur lið komast upp úr riðlinum.