Snýr aftur til Íslands

Hulda Dagsdóttir og Jón Brynjar.
Hulda Dagsdóttir og Jón Brynjar. Ljósmynd/Afturelding

Handboltakonan Hulda Dagsdóttir er komin aftur til Íslands eftir sex ára fjarveru en hún hefur verið í Danmörku og Noregi.

Hulda er vinstri skytta og uppalin í Fram og spilaði þar þangað til hún fór út. Hún lék síðast með Randesund í Noregi.

„Hulda er frábær leikmaður og erum við mjög ánægð að fá hana til liðs við okkur. Reynsla hennar og hugarfar mun koma til með að hjálpa liðinu innan sem utan vallar í vetur,“ sagði Jón Brynjar þjálfari liðsins í tilkynningu liðsins.

Jón Brynjar er nýráðin þjálfari liðsins sem féll úr úrvalsdeild á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert