Stórleikur Össurar í öðrum sigri Íslands

Össur Haraldsson skoraði 12 mörk fyrir íslenska liðið.
Össur Haraldsson skoraði 12 mörk fyrir íslenska liðið. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Íslenska U20 ára liðið í handknattleik karla vann Pólland með fimm mörkum, 37:32, í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu í Lasko í Slóveníu í dag. 

Ísland mætir Svíþjóð í úrslitaleik undanriðilsins á morgun en sigurlið úr riðlunum sex komast í átta liða úrslit ásamt tveimur liðum sem enda í öðru sæti. 

Ísland var þremur mörkum yfir í hálfleik, 19:16, og náði pólska liðið minnst að minnka muninn í tvö mörk í seinni hálfleik. 

Össur Haraldsson skoraði 12 mörk fyrir íslenska liðið en á eftir honum kom Elmar Erlingsson með sex mörk. 

Hinrik Hugi Heiðarsson skoraði fimm mörk líkt og Reynir Þór Stefánsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert