Framlengir við Fjölni

Sigurður Ingiberg Ólafsson í leik með Val.
Sigurður Ingiberg Ólafsson í leik með Val. Árni Sæberg

Handboltamarkvörðurinn Sigurður Ingiberg Ólafsson hefur endursamið við Fjölni, nýliða í úrvalsdeild karla í handbolta.  

Sigurður lék með Fjölni á síðasta tímabili og spilaði stórt hlutverk í umspilsleikjunum gegn Þór. Eftir að hafa slitið krossband vorið 2022 tók Sigurður skóna af hillunni síðasta haust og gekk til liðs við Fjölni.  

Sigurður hefur leikið víða á Íslandi, meðal annars með liðum eins og ÍR, Val, Kríu og nú Fjölni.   

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert