Haukar fara til Finnlands

Haukar mæta HC Cocks.
Haukar mæta HC Cocks. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Haukar voru eina íslenska liðið í pottinum þegar það var dregið í Evrópubikar karla í handbolta í dag.

Haukar frá heimaleik og mæta HC Cocks frá Finnlandi. Þeir fara beint í 2. umferð, í 64-liða úrslit.

Haukar lentu í 5. sæti í deildinni í ár og féllu úr leik í átta liða úrslitum en Cocks lentu í 2. sæti í deildinni.

Fyrri leikirnir fara fram annaðhvort 19. eða 20. október og seinni leikurinn 26. eða 27. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert